Að vera eða vera ekki á smáræðismörkum

Á Skyggnissteini er sjálfsþurftarbúskapur nú aðalatvinnugreinin. Fjölbreyttar afurðir ræktaðar og eldað ofan í heimilisfólk, vini og vandamenn.


En ... það er líka tekið á móti gestum, þeim veittur beini og spjallað um þessa heima og geima, t.d. á námskeiði eins og Jurtir og jóga. Allt er þetta undir smáræðismörkum í anda reglugerðar frá 2012. Þannig styðja gestir "lókal og fair-trade" aukabúgrein framleiðanda sem ekki þarf að leggja í mikinn kostnað meðan umfangið er ekki meira.

Iceland Traveller kom í heimsókn með breskt mataráhugafólk.
Ætigarður í uppsveitum í Bændablaðinu 26. ágúst 2017  segir skemmtilega frá þessu öllu.




Ummæli

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sá og prikla og sá. Hvar á svo að koma þessu fyrir?

Að sá í 13 stiga frosti

Bogi, Örvar og Litli-Bogi