Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2018

Röð viðburða - tengsl vistræktar og menningar

Mynd
Jurtir og myndlist 21. júlí    Karlotta Blöndal og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og tónlist     28. júlí    Pétur Eggertsson og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og jóga        11. ágúst  Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og vinnsla   25. ágúst  Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og myndlist Karlotta Blöndal karlottablondal.net og Dagný Guðmundsdóttir Karlotta Blöndal er myndlistarkona sem hefur unnið umhvefisverk og gjörninga. Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr). Þér er boðið til okkar laugardaginn 21. júlí að fræðast og njóta myndlistar og náttúru.  Karlotta mun fara með ykkur í myndlistarferðalag um land Skyggnissteins. Dagný sýnir ræktunina, segir frá hvernig hún nýtir villtar jurtir- og ræktaðar. Gestir fá góða máltíð beint úr garðinum og smakka það sem verið er að gera á staðnum.  Hópurinn er litill þannig að ha