Færslur

Sýnir færslur í flokknum jóga

Viðburðir - jóga, myndlist, vistrækt og vinnsla

Mynd
Jurtir og jóga 31. júlí,  Jurtir og myndlist 7. ágúst,  Jurtir og vinnsla 21. ágúst Arnhildur Lilý Karlsdóttir Jurtir og jóga Arnhildur Lilý Karlsdóttir og Dagný Guðmundsdóttir Arnhildur Lilý er jóga nidra og kundalini jógakennari og hefur kennt jóga um árabil. Um þessar mundir vinnur hún að upptökum á leiddri hugleiðslu og jóga nidra fyrir netið.  Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr).  Þér er boðið til okkar laugardaginn 31. júlí til að fræðast um ræktun, skynja og slaka! Arnhildur Lilý mun leiða þátttakendur inn í jóga nidra slökun með ólíkum viðkomustöðum í heimi skynjunar og náttúru. Nidra merkir svefn og má segja að jóga nidra sé meðvitaður svefn eða leidd hugleiðsla sem veitir heildstæða hvíld fyrir líkama og sál.  Dagný sýnir ræktunina, fer yfir gerð hraukabeðs og jurtasveips og segir frá hvernig hún nýtir villtar jurtir og r...

Röð viðburða - tengsl vistræktar og menningar

Mynd
Hildur Bjarnadóttir,   Bjarni Þór Kristjánsson,  Arnhildur Lilý Karlsdóttir,  Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skynjun         29. júní      Hildur Bjarnadóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skógarnytjar  20. júlí       Bjarni Þór Kristjánsson og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og jóga               27. júlí      Arnhildur Lilý Karlsdóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og vinnsla          24. ágúst   Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skynjun Hildur Bjarnadóttir og Dagný Guðmundsdóttir Hildur Bjarnadóttir er myndlistarmaður sem hefur, í verkum sínum, skoðað plöntur og tengsl þeirra við þann stað sem þær vaxa á. Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr). Þér er...

Röð viðburða - tengsl vistræktar og menningar

Mynd
Jurtir og myndlist 21. júlí    Karlotta Blöndal og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og tónlist     28. júlí    Pétur Eggertsson og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og jóga        11. ágúst  Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og vinnsla   25. ágúst  Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og myndlist Karlotta Blöndal karlottablondal.net og Dagný Guðmundsdóttir Karlotta Blöndal er myndlistarkona sem hefur unnið umhvefisverk og gjörninga. Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr). Þér er boðið til okkar laugardaginn 21. júlí að fræðast og njóta myndlistar og náttúru.  Karlotta mun fara með ykkur í myndlistarferðalag um land Skyggnissteins. Dagný sýnir ræktunina, segir frá hvernig hún nýtir villtar jurtir- og ræktaðar. Gestir fá góða máltíð beint úr garðinum o...