Færslur

Sýnir færslur í flokknum sáning

Sá og prikla og sá. Hvar á svo að koma þessu fyrir?

Mynd
Í janúar eru fræin skoðuð, í febrúar aðeins byrjað að sá. Aukinn kraftur í mars og í apríl fer allt á fullt, allt eftir hvað á við hverja tegund. Í maí og júni er mest sáð beint út. Til að byrja með sáum við í bakka, notum mikið ísbox, tvö saman, götum vel botninn á efra boxinu. Setjum góða gróðurmold í boxið og síðan sáðmold. Vatn í neðra boxið og gefum moldinni tíma til að drekka í sig vatnið. Þegar moldin er orðin vel rök sáum við í hana eftir leiðbeiningum á pakkanum. Leggjum dagblöð eða plast yfir boxin til að halda jöfnum raka á meðan verið er að spíra. Þegar fer að þrengja að plöntunum priklum við þær þ.e. setjum hverja plöntu í sér uppeldispott. Kosturinn við að sá í bakka er að þeir taka minna pláss en ef við sáum í potta strax. Á meðan enn er frost og kuldi verðum við að rækta í íbúðarhúsinu og það er ekki stórt. Þegar hlýnar höfum við plönturnar í gróðurskálanum og notum olíufylltan ofn til að skerpa á hitanum ef þess þarf. Þá er lika freistandi að sá beint í po...

Ræktunarfiðringur, flokka og skipuleggja

Mynd
Um leið og fór að birta eitthvað að ráði í janúar kom upp ræktunarfiðringurinn. Kassinn með fræjunum var sóttur, farið yfir hvern pakka, skráð hvað fræin eru gömul og hvað er mikið eftir. Síðan gerður listi yfir fræin sem gaman væri að kaupa. Fræin eru síðan flokkuð og sett í poka: Rætur, krydd, kál, baunir, blóm o.fl. Þetta verða þó nokkuð margir pokar. Þegar líða tekur á vorið riðlast þetta kerfi. Þá eru komnir pokar af fræjum sem búið er að sá og aðrir sem á að sá aftur. Það hefur verið stefna hjá okkur að rækta margar tegundir og lítið af hverju. Þetta kallar á mikið utanumhald. Það tók tíma að finna út hvað hentaði okkur best. Núna notum við töflu gerða í Word. í hverri línu er fyrst tegund, aldur fræja, afbrigði, athugasemd og áætlun, hvenær sáð, hvenær priklað, hvenær sett út, hvernig gekk og ath. Þetta eru vel yfir 100 línur en það er ekki öllu sáð á hverju ári. Til viðbótar við þetta eru línur fyrir lauka og aðrar plöntur. Þessu er raðað þannig upp að krydd er saman...