Færslur

Sýnir færslur í flokknum plöntur

Eitthvað að bíta í

Mynd
  Eitthvað að bíta í   Dagný Guðmundsdóttir 2018.  Unnið fyrir sýninguna  Hjólið   ( http://www.hjolid.is)    Myndhöggvarafélagið í Reykjavík stóð fyrir sýningunni. Verkið er í opnu rými milli Safamýrar og Háaleitisbrautar, bak við Verslunarmiðstöðina Miðbæ. Eitthvað að bíta í er hraukabeð (hugelkultur) með kryddjurtum og ætum blómum fyrir gesti og gangandi að nýta fyrir næstu máltíð. Við gerð hrauksins var tekin gröf og í hana settir trjábolir, greinar, torf, molta og mold. Þegar massinn byrjar að rotna myndast hiti og það losna næringarefni fyrir plönturnar. Hraukurinn heldur í sér raka og rúmar margar plöntur sem vilja lifa við mismunadi aðstæður. Hraukurinn er á opnu svæði til að fólk geti notið afurðanna. Hann vekur athygli á matvælaframleiðslu sem næst neytandanum, bæði við íbúðir og í almannarými. Þegar kominn er góður vöxtur í plönturnar er þér velkomið að tína upp í þig eða fá þér fyrir næstu máltíð. Verði þér að g...

Röð viðburða - tengsl vistræktar og menningar

Mynd
Hildur Bjarnadóttir,   Bjarni Þór Kristjánsson,  Arnhildur Lilý Karlsdóttir,  Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skynjun         29. júní      Hildur Bjarnadóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skógarnytjar  20. júlí       Bjarni Þór Kristjánsson og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og jóga               27. júlí      Arnhildur Lilý Karlsdóttir og Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og vinnsla          24. ágúst   Dagný Guðmundsdóttir Jurtir og skynjun Hildur Bjarnadóttir og Dagný Guðmundsdóttir Hildur Bjarnadóttir er myndlistarmaður sem hefur, í verkum sínum, skoðað plöntur og tengsl þeirra við þann stað sem þær vaxa á. Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr). Þér er...