Vaxið skógi eyðist landið ekki - en hvað með virkjun?
Haukadalsskógur blasir við Skyggnissteini handan Tungufljóts í allri sinni dýrð, eftir alger umskipti á einum mannsaldri. Myndin er tekin frá Skyggnissteini. Handan Tungufljóts sést hluti Haukadalsskógar og Bjarnarfell í baksýn. Geysissvæðið á vinstri jaðri. Þegar óveðursský seinni heimsstyrjaldarinnar voru að hrannast upp var svo komið þegar hvessti að jarðvegurinn þyrlaðist upp úr margra metra þykkum rofabörðum. Íslandsvinurinn Kristian Kirk kom þá til bjargar, keypti landið árið 1938 og gaf Skógrækt ríkisins til skógræktar og landverndar 1940. Kirk þekkti hvernig uppgræðsla hefti landbrot á sendnum ströndum Danmerkur og vissi að vaxið skógi eyðist landið ekki. Það skýtur skökku við að hluta þessa lands Skógræktarinnar hefur verið ráðstafað undir stíflu, lón og veituskurði við virkjun HS Orku. Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Landvernd kærðu framkvæmdaleyfið og telja "framkvæmdina vera í algerri andstöðu við ákvæði gjafabréfs Kristian Kirk." Á myndinni...