Viðburðir - Jurtir og litaskynjun. Jurtir og vinnsla



 

Jurtir og litaskynjun 13. ágúst og Jurtir og vinnsla 20. ágúst

Eygló Harðardóttir 
Jurtir og litaskynjun 13. ágúst
Eygló Harðardóttir og Dagný Guðmundsdóttir

Eygló er myndlistarmaður sem vinnur með liti í verkum sínum, bæði í  þrívíðum málverkum og bókverkum. Hún hefur einnig kennt litaskynjun og þrívíða litavinnu undanfarin ár.
Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr). 

Þér er boðið til okkar laugardaginn 13. ágúst til að skynja liti og fræðast um ræktun.
Eygló ætlar að nota einfaldar æfingar til að virkja litaskynjun okkar. Við gerum litatilraunir og berum saman töfra huglægrar litaskynjunar og stöðuga jarðliti. Hún segir frá og sýnir söguleg náttúruleg litarefni. Með hita umbreytum við leirlit í mismunandi litatóna og gerum úr þeim eggtemperumálningu fyrir litaprufur. Dagný sýnir ræktunina, fer yfir gerð hraukabeðs og jurtasveips og segir frá hvernig hún nýtir villtar jurtir og ræktaðar. Gestir fá góða máltíð beint úr garðinum og smakka það sem verið er að gera á staðnum.

Hópurinn er lítill, þannig að hann rúmist við eldhúsborðið. Við byrjum kl. 10 á Skyggnissteini (3 km frá Geysi) og gerum ráð fyrir að vera búin kl. 16. Verð: 15.000 kr. Skráning í síma 847 0946 eða í dagny@dagny.is.


Dagný og Sigurður
Jurtir og vinnsla 20. ágúst
Dagný Guðmundsdóttir

Dagný Guðmundsdóttir og maður hennar Sigurður Jónsson búa á Skyggnissteini nyrst í Tungunum en líf þeirra gengur út á fjölbreytta ræktun í anda vistræktar (permakúltúr).

Þér er boðið til okkar laugardaginn 20. ágúst að fræðast og njóta. Dagný sýnir ræktunina og segir frá nýtingu á villtum jurtum og ræktuðum. Farið verður yfir gerð hraukabeðs og jurtasveips. Allt sumarið og fram á haust er verið að vinna úr afurðunum á fjölbreyttan hátt. Sjóða niður, salta, sulta, safta, sýra, frysta, þurrka o.fl.  Góður tími fer í að kynna aðferðir og möguleika. Gestir fá góða máltíð beint úr garðinum og smakka það sem verið er að gera á staðnum.
.
Hópurinn verður lítill, þannig að hann rúmist við eldhúsborðið. Við byrjum kl. 10 á Skyggnissteini (3 km frá Geysi) og gerum ráð fyrir að vera búin kl. 15. Verð: 12.000 kr. Skráning í síma 847 0946 eða í dagny@dagny.is.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sá og prikla og sá. Hvar á svo að koma þessu fyrir?

Að sá í 13 stiga frosti

Fallegt verkfæri til að gera blómapotta úr dagblöðum