Færslur

Sýnir færslur í flokknum gróðurhús

Vatnið soðið - best að fara út og sækja aspasinn

Mynd
Heyrst hefur að það eigi helst að vera búið að setja vatnið í suðu þegar aspasinn er skorinn. Þannig er hann bestur. Við erum búin að borða fyrsta aspas vorsins á Skyggnissteini. Hann var góður. Í fyrra fengum við aspas aftur og aftur. Það væri gott að eiga fleiri plöntur þannig að við fengum meira magn í einu. Höfum ekki farið út í að sá fyrir aspas og það hefur gengið illa að kaupa nýjar rætur. Af hverju er ekki almennileg aspasframleiðsla á Íslandi? Þetta er ferskvara sem þolir illa geymslu. Við erum með okkar í óupphituðu gróðurhúsi. Vilmundur Hansen skrifaði grein um aspas í Bændablaðið 27. apríl 2018.

Bogi, Örvar og Litli-Bogi

Mynd
Gróðurhús lengja ræktunartímann og gefa skjól og hita fyrir gróður sem síður þroskast úti. Ylplast með loftbili dregur úr útfjólubláum geislum, en húsin hitna fljótt ótæpilega, svo loftun þarf að vera ríkuleg og helst sjálfvirk þegar hitinn fer upp fyrir 20 gráður. Hér eru notaðar pumpur fylltar gasi sem þenst út í hita og opnar. Bogi t.h. og Litli-Bogi.  Fyrsta gróðurhúsið á Skyggnissteini var samsett úr tilbúnum einingum, álgrind með 3 mm smelltu plasti, svo veigalítið að það þurfti að fergja þegar hvessti og taka plastið úr á veturna. Þetta litla oddhvassa hús fékk nafnið Örvar þegar Bogi kom til sögunnar. Örvar. Bogi . Hálft reisingagengið mátar fyrsta bogann. Bogi . Langbönd leggjast á bogana og á gaflana kemur trégrind. Bogi . Langbönd skrúfuð á eyru á bogunum. Bogi . 10 mm ylplast með loftbili festist á langbönd og botnstykki. Eftir reynsluna af Örvari var Bogi  gerður úr vel traustu efni og festur kyrfilega enda hefur hann staði...